Hefja leitarsjóður var stofnaður árið 2023 af Kristófer Þór Magnússyni.
Markmið sjóðsins er að fjárfesta í íslensku fyrirtæki í stöðugum rekstri með EBITDA á bilinu 50-300m.
Við fjárfestingu mun sjóðurinn taka yfir rekstur fyrirtækisins og leitast við að efla það enn frekar byggt á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður.
Leitartími sjóðsins er fram í lok árs 2024.
Kristófer er stjórnandi sjóðsins og sér um allan rekstur hans.
Kristófer hefur brennandi áhuga á þróun fyrirtækja og nýsköpun.
Áður en Kristófer stofnaði sjóðinn var hann forstöðumaður viðskiptaþróunar á fjármálasviði Origo en þar kom hann að stefnumótun og innleiðingu á stefnumótunarverkefnum, umbótaverkefnum og ýmsu öðru sem tengdist deildum og dótturfyrirtækjum Origo. Þar áður vann Kristófer í fyrirtækjaráðgjöf EY og í stjórnendaráðgjöf Oliver Wyman í Svíþjóð.
Kristófer er mikill áhugamaður um allt sem viðkemur íþróttum, íþróttakeppnum, heilbrigðum lífsstíl og útivist.
Frekari upplýsingar um bakgrunn Kristófers má finna hér.
Þegar þetta er skrifað hefur Leitar komið að fjármögnun þriggja leitarsjóða (að þessum meðtöldum) en þar af hefur einn þegar fjárfest í fyrirtæki (sjá nánar hér).
Frekari upplýsingar um Leitar má nálgast hér.
Leitarsjóður er tækifæri fyrir drifna eintaklinga sem hafa áhuga á að byggja upp eigin fyrirtæki.
Í stuttu máli er ferli stofnenda leitarsjóða í 5 fösum:
Sækja fjármagn til að fjármagna leit
Leita að fyrirtæki sem hentar styrkleikum leitara
Kaupa fyrirtæki innan leitartímabils sem er um 1 ár
Byggja upp fyrirtæki
Selja fyrirtæki innan tímaramma leitarsjóða sem er um 5-7 ár frá kaupum
Frekari upplýsingar um leitarsjóði má finna á heimasíðu Leitar Capital Partners og á netinu undir enska heitinu "search funds".
Ef þú vilt vita meira um leitarsjóði eða veist um fyrirtæki sem hentar áherslum sjóðsins endilega hafðu samband við kristofer (hjá) hefja.is.